Óska eftir tilboði

Hrísverk – gröfuþjónusta og smíði

Þarftu að láta grafa eða smíða? Segðu okkur frá verkefninu og við skoðum það með þér.

Þjónustusvæði:

Gröfuþjónusta

Grafan er JCB 8026, 2,6 tonn. Hún er lítil en samt í stærsta flokki minni grafna. Með aðeins 160 cm breidd kemst hún víða þar sem stærri vélar komast ekki.

Verkefni sem við tökum að okkur

  • Grunnar
  • Lagnaskurðir
  • Drenlagnir
  • Alls konar minni og meðalstór jarðvinnuverkefni

Grafan og búnaðurinn

Grafa
JCB 8026
Þyngd
2,6 tonn
Breidd
160 cm
Búnaður
Kerra, þjappa, jumper og almenn verkfæri. Aðgangur að kranabíl.
Flutningur
Grafan er flutt á staðinn á kerru

Smíðaþjónusta

Hrísverk tekur að sér almenn smíðaverkefni, aðallega utanhúss.

  • Smíði utanhússStærstur hluti smíðaverkefnanna er utanhúss.
  • UppslátturMót fyrir steypu, líka yfir veturinn.
  • Almenn smíðaverkefniSegðu okkur frá verkinu og við skoðum hvort það henti.

Svona gengur þetta fyrir sig

  1. Þú segir frá verkefninu

    Hringdu eða sendu fyrirspurn. Myndir af staðnum hjálpa mikið.

  2. Við skoðum aðstæður

    Við mætum á staðinn þegar þess þarf. Annars metum við verkið út frá myndum og lýsingu.

  3. Þú færð tilboð

    Innan tveggja daga. Það kostar ekkert að fá tilboð.

  4. Verkið er unnið

    Og skilað með toppfrágangi.

Um Hrísverk

Ingimundur Ólafsson hefur rekið Hrísverk frá árinu 2007.

Hrísverk er í Mosfellsbæ og vinnur á höfuðborgarsvæðinu og stór-höfuðborgarsvæðinu, bæði í jarðvinnu og smíði.

Starfað frá
2007
Breidd gröfu
160 cm
Tilboð innan
2 daga

Spurningar og svör

Finnurðu ekki svarið? Hafðu samband.

Kostar eitthvað að fá tilboð?

Nei, það kostar ekkert að fá tilboð.

Kemst grafan inn um þrönga leið, t.d. inn í garð?

Grafan er 160 cm breið. Ef leiðin inn er að minnsta kosti svo breið kemst hún yfirleitt að. Sendu mynd ef þú ert í vafa.

Vinnið þið á veturna?

Já. Jarðvinna og uppsláttur eru unnin á veturna líka.

Hvernig er verð reiknað?

Ýmist sem fast verð eða tímagjald. Það fer eftir eðli verksins.

Hve langan tíma tekur að fá tilboð?

Tilboð berst innan tveggja daga.

Á hvaða svæðum vinnið þið?

Hafa samband

Segðu okkur frá verkefninu. Myndir af staðnum hjálpa mikið við að gefa rétt tilboð.

Sími
Netfang
Þjónustusvæði
Staðsetning
Hvaða þjónustu vantar þig?
Myndir af staðnum (valfrjálst, mest 6)
Hringja Óska eftir tilboði